Um Gula miðann
Saga Gula miðans
Guli miðinn er breið vítamín- og bætiefna lína, sem hefur verið pakkað og seld á Íslandi í yfir 30 ár. Örn Svavarsson, stofnandi Heilsu var frumkvöðull og mikill brautryðjandi í innflutningi á heilsuvörum á sínum tíma. Hann stofnaði til einstakra viðskiptasambanda um allan heim með það að leiðarljósi að fá bestu mögulegu vörur, og kenndi Íslendingum að nota jurtir og um virkni þeirra.
Örn var mikill brautryðjandi á þessu sviði og kenndi og leiðbeindi fólki hvernig væri hægt að njóta lífsins og fyrirbyggja veikindi með vítamínum og bætiefnum. Vítamínin í Gula miðanum eru vel þekkt og margir þakka þeim betri líðan í gegnum tíðina. Vítamín og bætiefni Gula miðans eru þróuð og valin sérstaklega með þarfir Íslendinga að leiðarljósi og samkvæmt Evrópskum stöðlum um magn innihaldsefna og hámark leyfilegra dagskammt
Umbúðirnar
Vítamínin og steinefnin frá Gula miðanum er pakkað í dökk glerglös, en það er til að varðveita gæði innihaldsefna sem best og verja þau gegn birtu og sólarljósi sem og mengun frá plastumbúðum. Allar umbúðir Gula miðans eru endurvinnanlegar og mega glösin fara í endurvinnslu glers og tapparnir í endurvinnslu plasts.
GMP gæðavottun
Framleiðandi Gula miðans í Bandaríkjunum er með alþjóðlegt GMP gæðavottunarkerfi (Good manufacturing practice) og hefur á að skipa fullkomnum rannsóknarstofum til að þróa og prófa hráefni og fullunna vöru. Rannsóknir á virkni og hreinleika efnanna fara bæði fram í þeirra eigin rannsóknastofum og einnig eru óháðir aðilar fengnir til að kanna og rannsaka virkni og hreinleika efnanna sem starfa samkvæmt ströngustu gæðakröfum.















































