Melatónín 1mg, 90 töflur
Melatónín er hormón sem myndast í heilakönglinum sem er fyrir miðju heilans. Melatónín á þátt í að stilla líkamsklukkuna og stuðlar að því að okkur syfjar jafnan á kvöldin og við erum vel vakandi á daginn. Melatónín styður við góða slökun og hvíld. Aðeins fyrir fullorðna. Töflurnar eru vegan.
Strikamerki:
Vörunúmer:
Nánari upplýsingar
Svefnleysi getur verið ýmiss konar. Fólk getur átt í erfiðleikum með að sofna, haldast sofandi eða að svefngæði séu léleg eða óhagstæð. Öllu þessu fylgir oftast mikil dagþreyta. Við förum í gegnum nokkur svefnstig um nóttina og virðast þau öll mjög mikilvæg við að halda góðri heilsu. Eitt efni í líkama okkar kemur mikið við sögu í sambandi við svefninn og það er efnið melatónín. Um er að ræða hormón sem er framleitt í heilaköngli, sem er lítið eins cm svæði í heilanum. Það er stundum kallað svefnhormón eða dægursveifluhormón þar sem það gegnir svo mikilvægu hlutverki í sambandi við stjórnun á dægursveiflum okkar og svefn/vöku hringrásinni.
Horfðu á fræðslumyndband um Melatónín hér að neðan: