A-vítamín er efnasamband sem finnst í dýraafurðum í mismunandi forma retinóla. A-vítamín fyrirfinnst einungis í plöntuheiminum sem undanfari A-vítamíns eða í formi beta karótíns. Beta karótín tilheyrir flokki plöntulitarefna sem kallast karótenóíð. Upptaka á beta karótíni í mannslíkamanum viriðist nokkuð auðveld. A-vítamín er fituleysanlegt vítamín.
Kostir:
- A vítamín er nauðsynlegt manninum við æxlun og styður vöxt og þroska. Það styrkir ónæmiskerfið og stuðlar að því að vefir, húð og slímhúð þroskist og starfi eðlilega.
- A vítamín er mikilvægt sjóninni og styrkir sér í lagi nætursjón ásamt því að styðja við eðlilega matarlyst og bragðlauka. Fæða sem er rík í karótenóíðum virðist virka andoxandi og verja frumur líkamans fyrir ótímabæru niðurbroti.
Ráðlagður dagsskammtur:
- Fyrir karlmenn: 900 míkrógrömm
- Fyrir kvenmenn: 700 míkrógrömm
- Fyrir börn 2-5 ára: 350 míkrógrömm
- Fyrir börn 6-9 ára: 400 míkrógrömm
- Fyrir börn 10-13 ára: míkrógrömm
Ráðleggingar byggja bæði á inntöku á A-vítamíni úr dýraafurðum sem og B-karótíni úr jurtaríkinu.
Efri mörk:
- 3000 míkrógrömm
- 1500 míkrógrömm fyrir konur sem eru komnar yfir breytingarskeið
Einkenni á of mikilli inntöku á A vítamíni geta lýst sér í þreytu og svima, ógleði og uppköstum en virðist sjaldgæft.
A-vítamínskortur
A vítamínskortur er sjaldgæfur á norðlægum slóðum. Þar sem A-vítamin er fituleysanlegt þá getur líkaminn geymt birgðir af því sem geta enst manninum frá nokkrum mánuðum upp í ár. Einkenni á A vítamínskorti geta verið léleg nætursjón, augnþurrkur og tíðar sýkingar í augum.
Fæða sem inniheldur A vítamín og beta karótín:
Dýraafurðir (retinól):
- Egg
- Fiskur
- Lifur
- Mjólkurafurðir
Jurtaafurðir (beta karótín):
- Rauð paprika
- Gulrætur
- Spínat
- Mangó
- Sætar kartöflur
- Grasker
- Kúrbítur
Vissir þú að…
Niðurskornar gulrætur dýft í möndlusmjör eða aðrar fitur eykur upptöku á A vítamíni/beta karótíni og er frábær millibiti?
Heimildir:
Mynd: unsplash.com















































