Breytingaskeið fyrir konur 120 hylki

Sérhönnuð blanda af vítmínum og steinefnum fyrir konur á breytingaskeiði. Inniheldur Náttljósaolíu og Royal Jelly. Náttljósarolía er blóm og fræ þess eru talin ein besta náttúrulega uppspretta gamma-línólensýru (GLA). Rannsóknir benda til að inntaka Náttljósarolíu gagnist konum á breytingarskeiði, m.a. að það bæti nýtingu kalks og hafi hormónajafnandi eiginleika. Náttljósarolía er líka talin halda húðinni unglegri og sléttri.

Roayal Jelly eða Drottningarhunang er gríðarlega næringarríkt og er það talið efla orku og draga úr hormónasveiflum.

Strikamerki:

5690684000943

Vörunúmer:

00KVE

Notkun

2 hylki á dag með mat.

Innihald

Innihald í 1 hylki: E vítamín (d-alpha tocopherol) 25mg, B6 (pyridoxine HCl) 5mg, Kalk (carbonate) 50mg,

magnesíum (oxide) 25mg, soja isoflavones 50mg, dong quai (angelica sinensis) 50mg, salvía (salvia officinalis) 25mg, wild yam (dioscorea composita) 50mg, drottningarhunang (royal jelly) 25mg, kvöldvorrósarolía (evening primrose oil) 75mg.

Önnur innihaldsefni: Gelatín, sojaolía, glycerin, hreinsað vatn, bývax, soja lesitín, kísildíoxíð, beta karotín í maisolíu.

Nánari upplýsingar

  • Breytingaskeið (áður Kvennblómi) hefur fengið mikið af jákvæðum reynslusögum frá konum sem kunna að meta þessa vöru og hvernig hún hefur hjálpað þeim.
  • Breytingaskeið inniheldur soja ísóflavonóíð sem innihalda svokölluð jurta-estrógen. Rannsóknir benda til að Soja ísóflavonóíð hafi jákvæð áhrif til lækkunar á háu kólesteróli og hefur verið notuð með góðum árangri við svitakófum hjá konum á breytingaraldri. Þá er talið að þau virki verndandi fyrir æðar og bein.
  • Breytingaskeið inniheldur Dong Quai jurtina sem er þekkt í kínverskri læknisfræði fyrir að auka blóðflæði um líkamann. Á vesturlöndum er hún mest notuð af konum, þá helst sem styrkjandi jurt vegna vandamála frá móðurlífi. Hún er talin koma jafnvægi á hormónaefnaskipti kvenna. Mælt er með jurtinni fyrir konur vegna þrauta tengdum breytingarskeiði, einnig til að efla þrótt. Jurtina þarf að nota í allt að 6–8 vikur, áður en áhrif hennar skila sér að fullu.
  • Breytingaskeið inniheldur Wild Yam sem er jurtaprógesteronlíka hormóna og er mikið notuð við óþægindum breytingarskeiðsins. Hún er talin bólgueyðandi og verkjastillandi og auk þess vökvalosandi.  Mörgum þykir hún draga úr svitakófum.
  • Breytingaskeið inniheldur Salvía er talin góð við svitakófum og stuðla að hormón.
Scroll to Top