Ashwagandha hefur talsvert verið í umræðunni undanfarin ár og ekki að ósekju. Þetta er mögnuð jurt í flokki svokallaðra adoptogena eða aðlögunarefna. Adaptogens stuðla s.s. að jafnvægi (e.homeostasis) í líkamanum. Segja má að þetta sé vörn fyrir líkama okkar gegn álagi nútímans og vinnur mjög vel gegn streitu en langvarandi streita er allt annað en góð fyrir líkamann.
- Ashwagandha er talin ein mikilvægasta jurtin í Ayurveda fræðunum sem eiga uppruna sinn til Indlands rétt eins og jurtin sjálf. Þessi fræði sem eru yfir 5000 ára gömul og flokkast til náttúrulækninga. Ashwagandha ber einnig nafnið Indverskt ginseng og hefur fjölmarga góða eiginleika út frá rannsóknum.
- Stærsti ávinningurinn er að mínu mati vörn gegn streitu og kvíða. Inntaka þess virðist stuðla að hormónajafnvægi og örva sefkerfið og hjálpar þannig við að minnka álag.
- Vísbendingar benda til að þess að Ashwagandha stuðli að auknum styrk og úthaldi. Það hefur með það að gera að súrefnisupptaka eykst og þannig verði bæting á árangri í líkamsrækt.
- Sannanir eru fyrir að Ashwagandha hjálpi gegn þunglyndi og kvíða. Á sama tíma tíma er vitað að streitulosun gerir það sama og því er líklegt að slaki í kerfinu hjálpi fólki að líða betur á líkama og sál. Áunnin sykursýki er vaxandi vandamál hér á landi rétt eins og almennt í vestrænum heimi. Mikilvægt er að forðast unnin kolvetni og eins og hægt er. Þá getur Ashwagandha örvað frumur til þess að taka inn glúkósa úr blóði. Króm hefur svipaða eiginleika.
- Krónískar bólgur eru líka vaxandi vandamál og talið er að Ashwagandha veiti vörn gegn þeim.
- Rannsóknir benda til að Ashwagandha örvi heilastarfsemi og hjálpi til við athygli og árverkni. Fólk sem notar jurtina talar um að það sofi betur og vakni hressara.
- Ashwagandha er mjög örugg jurt sem flestir geta notað en þungaðar konur og fólk með sjálfsónæmissjúkdóma ættu að ráðfæra sig við lækni.
Að ofantöldu að dæma hefur Ashwagandha fjölmörg jákvæð áhrif í för með sér. Það sem getur skýrt þetta er hversu vel jurtin virðist vinna gegn streitu en streitan hef svo margt skaðlegt í för með sér. Með því að vinna gegn streitu geturávinningurinn verið magnaður. Hafa ber í huga að heilsusamlegur lífstíll þarf alltaf að vera í fyrsta sæti. Ekki gengur að keyra sig út í vinnu og borða drasl og halda að Ashwagandha bjargi málunum. Þessir þættir þurfa að vera í lagi en getur Ashwagandha getur ofan á það bætt heilsu og lífsgæði til muna.
Heilsukveðja, Víðir Þór Þrastarson, íþrótta-og heilsufræðingur
















































