Vöruyfirlit

Melatónín getur hjálpað með svefninn

Melatónín er hormón sem líkaminn myndar í heilaköngli. Áhrif þess eykst þegar dimmt er orðið og nær hámarki um miðja nótt og minnkar svo þegar birta tekur. Þannig tekur melatónín þátt í því að stilla okkar eðlislægu klukku sem veldur því að okkur syfjar á kvöldin og við erum vakandi á daginn.

MelatóninÉg hef í grunninn ávallt sofið vel en með hækkandi aldri hef ég átt erfiðara með að sofna. Ég varð sérstaklega vör við þetta um fertugt en það er einmitt mjög algengt að fólk upplifi svefntruflanir á því aldursskeiði þegar melatónínframleiðslan minnkar.

Ég hafði átt ófáar næturnar þar sem ég lá andvaka og náði ekki að festa svefn þrátt fyrir að hafa prófað ýmislegt. Sumar nætur svaf ég vel, en stundum kom það fyrir nokkur kvöld í röð að ég náði hreinlega ekki að sofa neitt alla nóttina.

Það sleppur kannski fyrir horn að svefninn skerðist einstaka kvöld en til lengri tíma gengur það bara alls ekki og hætta er á að það skapist ákveðinn vítahringur. Ég var farin að kvíða því að ná ekki að sofa og hafði áhyggjur af því hvernig morgundagurinn yrði eftir svefnlitla nótt.

Þarna hefur melatónín frá Gula miðanum reynst mér vel en það bætir svefngæði, styttir biðtíma eftir svefni og það að fólk vakni eins oft á nóttu. Með inntöku á melatónín fyrir svefn hefur það því hjálpað mér að festa svefn fyrr og vinda ofan af vítahringnum.

  • Skoða Melatónín frá Gula miðanum hér

 

Berglind Guðmundsdóttir er hjúkrunarfræðingur, ástríðukokkur og athafnakona. Hún hefur frá árinu 2012 haldi úti vefsíðunni Gulur, rauður, grænn og salt sem er eitt vinsælasta matarblogg landsins og gefið út þrjár matreiðslubækur. Berglind er einn af þáttastjórnendum Dagmála á mbl.is ásamt því að taka að sér ýmis verkefni sem tengjast uppskriftasíðunni.

Scroll to Top